Skip to Content

Vistmennt

Vistbyggðarráð og Vistmennt hafa gert samning um samstarf hvað varðar kortlagningu visvænnar þekkingar í mannvirkjageiranum hér á landi.

Um er að ræða tímabundið samstarf, þar sem verkefnið (Dawn of Sustainability/ Vistmennt) er 2 ára verkefni sem er ætlað að vinna slíka greiningu auk þess að þýða, staðfæra og útbúa kennsluefni í faginu.

Vistbyggðarráð er af þeim sökum ekki með sérstakan vinnuhóp um menntun eins og er en leggur áherslu á að eiga gott samstarf  við  verkefnisstjórn DOS verkefnisins. Meðal samstarfsverkefna má   meðal annars nefna málstofu um menntun sem haldin var í mars 2011.

Nánar má fræðast um verkefnið á heimasíðu arkitektafélags Íslands (www.ai.is) sem er einn af stofnaðilum þessa verkefnis, eða hafa samband við Kristínu Þorleifsdóttur verkefnisstjóra DOS (kristin@ai.is).