Skip to Content

Vel heppnuð ráðstefna

Þann 24. maí síðastliðinn stóð  Vistbyggðarráð fyrir ráðstefnu um vistvæn byggingarefni sem bar yfirskriftina, Efnið skapar andann – Vistvæn byggingarefni og áhrif þeirra á innivist og hönnun.
Á ráðstefnunni var  sjónum sérstaklega beint að notkun vistvænna byggingarefna  á Íslandi. Af þessu tilefni voru jafnframt framleiðendur og seljendur vistvænna byggingarefna hvattir til að kynna þær vörur sem uppfylla skilyrði um vistvæna vottun eða eru umhverfisvænni en almennt gerist.  Þeir aðilar sem kynntu vörur sínar voru, Sögin ehf. og  EMAR byggingarvörur en einnig var umhverfisvefurinn, náttúra.is með kynningu á starfsemi sinni, en þar gefst  söluaðilum tækifæri til að kynna umhverfisvænar byggingavörur.
Óhætt er að segja að vel hafi tekist til og kom margt áhugavert fram í framsögum sem haldnar voru . Á ráðstefnunni komu fram ólík sjónarmið og leiðir að því miklvæga markmiði sem er að lækka kolefnisspor byggingageirans  en ekki síst því að byggja vandaðar byggingar fyrir fólk og umhverfi.  Innan  skamms verður hægt að skoða samantekt ráðstefnunnar hér á vefnum. Ráðstefnur sem þessi eru mikilvægur þáttur í starfsemi Vistbyggðarráðs, þar sem það er eitt af meginhlutverkum þess að bæði miðla upplýsingum og hvetja til umræðu um allt það sem viðkemur sjálfbærni og grænum áherslum í bæði hönnun, skipulagi og rekstri mannvirkja.
 
Hægt er að skoða myndir frá ráðstefnunni á facebook síðu VBR